Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. desember 2014 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 1. 2. og 3. hæð og koma fyrir rými fyrir kælibúnað og varaaflstöð við norðurhlið húss á lóð nr. 16 við Neshaga. Stærð varaaflstöðvarhúss mhl. 03 er 6,0 ferm. , 13,0 rúmm. og kælibúnaðarhúss 02 er 5,3 ferm., 11,7 rúmm. Gjald kr. 9.500