Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 20. janúar 2015 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi 1. 2. og 3. hæð og koma fyrir rými fyrir kælibúnað og varaaflstöð við norðurhlið húss á lóð nr. 16 við Neshaga. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 16. janúar 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. janúar 2015. Stærð varaaflstöðvarhúss mhl. 03 er 6,0 ferm. , 13,0 rúmm. og kælibúnaðarhúss 02 er 5,3 ferm., 11,7 rúmm. Gjald kr. 9.500
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Neshaga 14 og Hofsvallagötu 53.