Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 31. júlí 2015 var lögð fram umsókn Þorgeirs Jónssonar, dags. 20. júlí 2015, varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 24 við Vesturgötu. Í breytingunni felst uppbygging á lóð, samkvæmt uppdrætti Þorgeirs Jónssonar arkitekts, dags. 15. júlí 2015. Einnig er lagt fram umboð Þórðar Magnússonar f.h. Eignarhaldsfélagsins Norma ehf., mótt. 23. júlí 2015. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra.