Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 5. október 2012 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. október 2012 þar sem spurt er hvort leyft yrði að innrétta veitingaverslun (kaffisölu) í flokki l á fyrstu hæð hússins nr. 28 á lóðinni nr. 24-30 við Fellsmúla. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.