Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. janúar 2017 var lögð fram fyrirspurn Hildar Bjarnadóttur, mótt. 14. desember 2016, um að tengja bílskúr við húsið á lóð nr. 1A við Bauganes og setja hæð ofan á bílskúrinn, samkvæmt teikningu, ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.