Lögð fram umsókn Hildar Bjarnadóttur, mótt. 8. mars 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Einarsness vegna lóðar nr. 1A við Bauganes. Í breytingunni felst að auka byggingarmagn á lóðinni, þar sem gert er ráð fyrir að byggja ofan á bílskúr og tengja hann við húsið, og byggja við eldhús sem snýr til austurs, samkvæmt uppdr. Hildar Bjarnadóttur, dags. 2. mars 2017.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.