Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. september 2021 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN056586 þannig að atvinnurými í kjallara/jarðhæð, 0003, 0007, 0008, 0009, 0010 og 0011 verða hluti tilsvarandi íbúða á efri hæð, það er íbúðir 0103, 0115, 0116, 0117, 118 og 119 í mhl. 01 á lóð nr. 2 við Súðarvog. Erindi fylgir bréf hönnuðar ódagsett og lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. maí 2021 þar sem tekið var jákvætt í ofangreint erindi. Gjald kr. 12.100