Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 23. júlí 2013 vegna viðbótargagna umsækjanda. Sótt er um leyfi til stækkunar svala á suð-vesturhlið hússins á lóðinni nr. 5 við Skólavörðustíg. Meðfylgjandi er bréf arkitekts dags. 9. júní 2013, umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 13. júní 2013 og umsögn Minjasafns Reykjavíkur dags. 20. júní 2013. Einnig fylgja samþykki lóðarhafa Skólavörðustígs 3A og bréf umsækjanda með rökstuðningi hvorutveggja ódagsett, útskrift úr gerðabók skipulagsfulltrúa frá 5. júlí 2013 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5.júlí 2013. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 25. júlí 2013. Gjald kr. 9.000
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Skólavörðustíg 3a, 4, 8 og 10.