Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 8. september 2022 var lögð fram fyrirspurn Ólafs Jóhanns Ólafssonar og ASK Arkitekta ehf., dags. 31. ágúst 2022, um að stækka garðskála á lóð nr. 46 við Freyjugötu, samkvæmt uppdr. ASK Arkitekta dags. 31. ágúst 2022. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 6. október 2022.