Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 3. janúar 2012 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta sjö íbúðir, byggja svalir á suðurhlið 3. hæðar, breyta opnanlegum fögum í gluggum og byggja reiðhjólaskýli í garði fjölbýlishúss á lóð nr. 44 við Bergstaðastræti. Erindi var grenndarkynnt frá 13. janúar til og með 10. febrúar 2012. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Kristín Linda Kristinsdóttir og Maríus Þór Jónasson dags. 6. febrúar 2012.
Erindi fylgir jákvæð umsögn skipulagsstjóra dags. 6. október 2011.
Gjald kr. 8.000