Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
THG Arkitekta ehf.
dags. 5. júní 2020 ásamt greinargerð dags. 5. júní 2020 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Hálsahverfis vegna lóðarinnar nr. 6 við Tunguháls. Í breytingunni felst að leyfilegt er að hækka nýtingarhlutfall lóðar í 1,1 ofanjarðar og að gera skal ráð fyrir 1 bílastæði á hverja 50 fm. fyrir skrifstofu og verslunarrými og 1 bílastæði á hverja 200 fm. í geymslum, vöruhúsum, verkstæðum eða tækjarýmum. Á það bæði við eldri og nýja byggingarhluta, samkvæmt tillögu
THG Arkitekta ehf.
dags. 5. júní 2020. Tillagan var grenndarkynnt frá 10. júlí 2020 til og með 7. ágúst 2020. Eftirtaldir sendu inn athugasemdir: Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. dags. 28. júlí 2020. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 14. ágúst 2020 og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 17. ágúst 2020.