Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju umsókn Kristjáns Ásgeirssonar dags. 28. ágúst 2019 ásamt skipulagslýsingu dags. í ágúst 2019 vegna breytingu á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar34/Ármúla 31, reitur 1.265. Í skipulagslýsingunni eru fyrirhugaðar breytingar á deiliskipulagi tilgreindar. Í breytingunni felst að gert ráð fyrir að þétt ný blönduð byggð rís í stað atvinnuhúsnæðis. Kynning stóð til og með 10. október 2019. Eftirtaldar stofnanir sendu umsagnir: Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur dags. 20. september 2019, Skipulagsstofnun dags. 25. september 2019, skrifstofa umhverfisgæða dags. 1. október 2019, Minjastofnunar Íslands dags. 15. október 2019 og Borgarsögusafn Reykjavíkur dags. 18. október 2019.