Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 5. júlí 2019 var lögð fram fyrirspurn Símonar S Wiium dags 12. júní 2019 ásamt greinargerð dags. 4. júní 2019 varðandi breytingu á rekstri verslunarrýmis að Laugavegi 53B í kaffi- og vínbar. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 16. ágúst 2019.