Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 3. júní 2022 var lögð fram fyrirspurn Yrki arkitekta ehf. dags. 13. maí 2022 ásamt bréfi dags. 13. maí 2022 um að koma fyrir hjólaskýli við suðurenda íþróttahússins á lóð Verslunarskóla Íslands að Ofanleiti 1 ásamt því að koma fyrir djúpgámum sunnan við fyrirhuguð hjólaskýli. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. júní 2022.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 30. júní 2022, samþykkt.