Lögð fram umsókn ASK Arkitekta ehf. dags. 7. október 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Breiðholts II Seljahverfis vegna lóðarinnar nr. 1 við Tindasel. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit lóðarinnar þannig að koma megi fyrir fimm íbúðum auk starfsmannaaðstöðu í stað herbergjasambýlis fyrir fimm íbúa, samkvæmt uppdrætti ASK Arkitekta ehf. dags. 7. október 2019.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018