Lögð fram að nýju fyrirspurn
Stáss Design ehf.
f.h. Þvottakaffi ehf., dags. 27. júní 2017 um leyfi til þess að nýta rými það sem myndast undir palli á 2. hæð aftan við húsið að Austurstræti 9 sem aflokaða útigeymslu skv. skissu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. júlí 2017.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. júlí 2017 samþykkt. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.