Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Framkvæmda- og eignasviðs Reykjavíkur dags. 5. mars 2009 varðandi breytingu á deiliskipulagi Borgarspítalans vegna lóðar leikskólans Furuborgar. Í breytingunni felst stækkun lóðar og byggingarreits auk fjölgunar á bílastæðum, samkvæmt uppdrætti dags. 3. mars 2009. Einnig er lögð fram skýrsla Umhverfis- og samgöngusviðs að svifryks- og hljóðvistarmælingum fyrir lóðina dags. 25. júní 2010. Auglýsingin stóð yfir frá 15. nóvember 2010 til og með 29. desember 2010. Engar athugasemdir bárust.