Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 7. nóvember 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. nóvember 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að selja léttvín í borðsal á 1. hæð í tengslum við rekstur Hostel B47 í Heilsuverndarstöðinni á lóð nr. 47 við Barónsstíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember2014.