Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. janúar 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. janúar 2021 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta veitingastað í flokki II, tegund E fyrir 220 gesti ásamt því að gerð er grein fyrir áður gerðum breytingum á básaskipan í Kolaportinu í húsi á lóð nr. 19 við Tryggvagötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 29. janúar 2021.
Gjald kr. 12.100