Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Pálmars Kristmundssonar dags. 12. ágúst 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands Vísindagarða vegna lóðarinnar nr. 15-19 við Sæmundargötu. Í breytingunni felst að dýpt innskota í byggingarreit er minnkuð í 3 metra og að byggingarreitir fyrir inndregna þakhæð eru sameinaðir í einn samfelldan reit, samkvæmt uppdr. PK Arkitekta ehf. dags. 1. ágúst 2020. Tillagan var grenndarkynnt frá 17. september 2020 til og með 15. október 2020. Engar athugasemdir bárust.