Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. júlí 2021 var lögð fram fyrirspurn ASK arkitekta dags. 1. júlí 2021 ásamt bréfi dags. 1. júlí 2021 um bráðabirgðabílastæði á óbyggðum lóðum Vísindagarða Háskóla Íslands, lóð B og að hluta til á lóð E og H, samkvæmt uppdrætti ASK Arkitekta, dags. í júlí 2021. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. september 2021.