Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Ask Arkitekta ehf. dags. 14. desember 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi Háskóla Íslands, Vísindagarða, vegna lóðanna nr. 15-19 og 21 við Sæmundargötu. Í breytingunni felst breyting á kröfum um fjölda bílastæða á lóðunum og samnýtingu bílageymslu á lóð nr. 21 við Sæmundargötu, felld er niður krafa um ramp í bílakjallara á lóð nr. 19 við Sæmundargötu og felldur er niður dálkur í nýrri skilmálatöflu um heildarfjölda bílastæða á lóðunum auk þess sem dálkur með C-rýmum er felldur niður, samkvæmt uppdr. Ask Arkitekta ehf. dags. 14. desember 2018. Tillagan var auglýst frá 27. mars 2019 til og með 8. maí 2019. Engar athugasemdir bárust.