Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Rúnars Gunnarssonar f.h. skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 15. janúar 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Eyrarlands vegna lóðarinnar nr. 6 við Álfaland. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni og færsla á byggingarreit vörugeymslu, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 6. janúar 2015. Einnig er lagt fram umboð skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 26. janúar 2015.