Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Rúnars Gunnarssonar f.h. skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 15. janúar 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi Eyrarlands vegna lóðarinnar nr. 6 við Álfaland. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni og færsla á byggingarreit vörugeymslu, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 6. janúar 2015. Einnig er lagt fram umboð skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 26. janúar 2015. Tillagan var grenndarkynnt frá 29. janúar til og með 26. febrúar 2015. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: íbúar Álfalandi og Álandi dags. 19. febrúar 2015.