Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 11. nóvember 2016 var lögð fram fyrirspurn Direktu lögmannsstofu, mótt. 4. nóvember 2016, um að breyta rými í húsinu á lóð nr. 8 við Malarhöfða sem innréttað er sem húsvarðaríbúð í íbúð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 17. nóvember 2016.