Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 31. ágúst 2018 var lögð fram fyrirspurn Kristins Ólafssonar f.h. Bandalags íslenskra skáta dags. 28. febrúar 2018 ásamt bréfi ódags. um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 123 við Hraunbæ sem felst í stækkun lóðar og byggingarreits fyrir fyrirhugaða viðbyggingu á lóð, samkvæmt uppdr. Glámu-Kím dags. 6. febrúar 2018. Fyrirspurninni var frestað, fyrirspyrjandi hafi samband við embætti skipulagsfulltrúa, og er nú lögð fram að nýju ásamt bréfi skrifstofu sviðsstjóra dags. 6. janúar 2019.