Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 22. maí 2015 var lögð fram fyrirspurn Jóhanns Arnar Logasonar dags. 20. maí 2015 um að breyta notkun hluta efri hæðar hússins á lóð nr. 2-6 við Kirkjustétt. Einnig er lagt fram bréf Jóhanns Arnar Logasonar dags. 19. maí 2015. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júní 2015.