Lögð fram fyrirspurn Önnu Sigríðar Jóhannsdóttur h.f. Menju ehf., mótt. 15. mars 2016, varðandi hækkun húsanna B og C á lóð nr. 2-6 við Kirkjustétt um eina hæð þ.e. hús B verði þrjár hæðir og hús C verði tvær hæðir ásamt breytingu á notkun húsanna í blandaða notkun, en áfram yrði þjónusta á götuhæð en íbúðir á efri hæðum húsanna.