Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 13. febrúar 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. febrúar 2015 þar sem spurt er hvort breyta megi skráningu og innrétta íbúðir í bakhúsi, mhl. 03, hús C, á lóð nr. 2-6 við Kirkjustétt. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 18. febrúar 2015.