Lögð fram fyrirspurn Vesturgarða ehf. dags. 8. apríl 2013 varðandi uppbyggingu á lóðinni nr. 15 við Skeifuna, samkvæmt uppdr. +Arkitekta ehf. dags. 8. apríl 2013. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10 maí 2013.
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað í samræmi við umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. maí 2013.