Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 4. október 2016 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN051134, kvistur á bakhlið er breikkaður, sameina bakhús, byggja mænisþak og koma fyrir gleranddyri framan við inngang í húsið á lóð nr. 10 við Laugaveg. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 7. október 2016
Umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 5. september 2016 fylgir erindi.
Stækkun : 1,8 ferm., 86,3 rúmm. Gjald kr. 10.100