Lögð fram fyrirspurn Steinars Þórs Sveinssonar mótt. 14. nóvember 2017 ásamt greinargerð
THG Arkitekta ehf.
dags. 19. október 2017 um breytingu á notkun og fjölgun úbúða í húsinu á lóð nr. 80 við Laugaveg úr 4 íbúðum í 1 íbúð og 5 hótelíbúðir, aukið byggingarmagn, hækkun á nýtingahlutfalli, stækkun kvista og sleppa svölum á þakhæð á götuhæð, sleppa þaksvölum og setja lyftu í húsið, samkvæmt uppdr.
THG Arkitekta ehf.
dags. 19. október 2017. Nokun 1. hæðar hússins verður óbreytt. Einnig er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 6. nóvember 2017.