Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 31. mars 2015 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, byggja ofan á og innrétta fjórar íbúðir í húsi á lóð nr. 80 við Laugaveg. Einnig er sótt um undanþágu frá greinum 6.1.3, 6.4.2, 3, 4 og 5, 6.7.2, 7, 8, 10, 11, 13 og 14 í byggingareglugerð og fylgir greinargerð þarum í byggingarlýsingu erindis. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 20. febrúar 2015 fylgir erindinu, einnig umsögn burðarvirkishönnuðardags. 24. mars 2015. Stækkun: 210,5 ferm., 630,2 rúmm. Gjald kr. 9.823