Þak, kvistur og svalir
Smáragata 12
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 12 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 392
27. apríl, 2012
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. apríl 2012 þar sem sótt er um leyfi til að gera breytingar innanhúss, endurnýja þak og byggja þrjá kvisti, byggja nýjar svalir til vesturs, fjarlægja skorstein, byggja úr steinsteypu með timburþaki geymsluskúr á lóð, gera nýjan sérinngang á austurhlið og útgang úr kjallara, sbr. fyrirspurn BN043116, á íbúðarhúsi á lóð nr. 12 við Smáragötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsstjóra dags. 18. apríl 2012.
Meðfylgjandi er samkomulag eigenda dags. 12. desember 2011, þinglýstur eignaskiptasamningur frá apríl 1992 og afsal frá júní 1992 og íbúðarskoðun byggingarfulltrúa dags. 3. febrúar 2012.
Stækkun húss: xx rúmm.
Geymsluskúr: 25 ferm., 67,3 rúmm.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 20. apríl 2012 ásamt umsögn skipulagsstjóra frá 18. apríl 2012 fylgja erindinu.
Gjald kr. 8.000 + 5.384
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Smáragötu 10 og 14 og Sóleyjargötu 35 og 37 þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir í samræmi við umsögn skipulagsstjóra dags. 18. apríl 2012.

101 Reykjavík
Landnúmer: 102742 → skrá.is
Hnitnúmer: 10018448