Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs að breytingu á deiliskipulagi Reynisvatnsás. Í breytingunni felst að afmörkuð er lóð fyrir opið leiksvæði í hverfið, samkvæmt uppdr. Landark dags. 6. júní 2018. Tillagan var auglýst frá 17. júlí 2018 til og með 28. ágúst 2018. Engar athugasemdir bárust.