Fyrirspurn
Lögð fram drög að hugmyndaleit dags. 1. nóvember 2017 fyrir svæði Norður Mjóddar, þar sem áform eru um að byggja upp öflugt, eftirsóknarvert og fjölbreytt íbúðar, - verslunar -og þjónustusvæði í samræmi við markmið í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030. Lagt er til að valdar verði fimm arkitektastofur til að móta tillögur að skipulagi og að niðurstöður þess efnis liggi fyrir í febrúar - mars 2018.