Lögð fram umsókn skrifstofu framkvæmda og viðhalds dags. 23. október 2020 um framkvæmdaleyfi vegna fullnaðarfrágangs á göngu- og reiðstíg við Rauðavatn ásamt fullnaðarfrágangs á stíglýsingu meðfram göngu- og reiðstígum. Einnig er lagt fram teikningasett VSÓ ráðgjafar dags. í október 2020.
Svar
Vísað til umsagnar verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.