Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 6. mars 2020 var lögð fram fyrirspurn Jóhönnu Helgu Halldórsdóttur dags. 3. mars 2020 um að aflétta kvöð um að óheimilt sé að vera með varanlega búsetu í húsnæðinu að Sóleyjargötu 25 ásamt því að heimilt verði að breyta notkun/skráningu hússins úr einbýlishúsi í fjölbýlishús. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. mars 2020.