Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. febrúar 2021 var lögð fram fyrirspurn
Admin ehf.
dags. 8. febrúar 2021 um að fella niður kvöð á lóð nr. 25 við Sóleyjargötu sem felst í að ekki er heimilt að vera með fasta búsetu í húsinu. Til vara er sótt um að fella niður kvöð til bráðabirgða á meðan verið er að skoða framtíðar nýtingu/skráningu hússins. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. febrúar 2021.