Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 15. maí 2015 var lagt fram erindi skrifstofu borgarstjórnar dags. 13. maí 2015 þar sem óskað er eftir umsögn umhverfis- og skipulagssviðs á umsókn Heimis Arnar Jenssonar um rekstrarleyfi fyrir gististað í flokki II að Samtúni 42. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. maí 2015.