Fyrirspurn
Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. ágúst 2010 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að byggja 180 cm háan steinsteyptan vegg á lóðarmörkum sem snúa að Nóatúni á lóð nr. 42 við Samtún. Erindinu var vísað til umsagnar gatna- og eignaumsýslu og umferðardeildar Framkvæmdasviðs á fundi skipulagsstjóra 13. ágúst 2010 og til umsagnar umhverfis- og samgöngusviðs á fundi skipulagsstjóra 19. nóvember 2010. Á fundi skipulagsstjóra 29. október 2010 var ítrekað óskað eftir umsögnunum frá gatna- og eignaumsýslu og umferðardeild Framkvæmdasviðs. Erindið nú lagt fram að nýju ásamt umsögn Umhverfis- og samgöngusviðs dags. 29. mars 2011 og umsögn skipulagsstjóra dags. 31. mars 2011.