Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. febrúar 2011 þar sem sótt er um leyfi til að flytja tvær lausar kennslustofur frá Norðlingaskóla og setja niður á lóð leikskólans Sunnuhlíðar á lóð nr. 19 við Sólheima. Jafnframt er erindi BN042464 dregin til baka. Gjald kr. 8.000
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða umsókn fyrir hagsmunaaðilum að Sólheimum 17a, 21, 21b, 23 og 23a.