Lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar, mótt. 13. júní 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skólavörðuholts vegna lóðanna nr. 10 og 12 við Bergþórugötu. Í breytingunni felst að byggja íbúðarhús á lóðunum.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.