Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 24. janúar 2014 var lagt fram bréf Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur dags. 21. janúar 2014 með beiðni um umsögn umhverfis- og skipulagssviðs vegna útgáfu starfsleyfis fyrir geymslu úrgangs í Keldnaholti. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. janúar 2014