Lögð fram umsókn Bjarna Snæbjörnssonar dags. 26. september 2019 um breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits vegna lóðarinnar nr. 29 við Nýlendugötu. Í breytingunni felst að fjölga íbúðum hússins úr 5 íbúðum í 7 íbúðir, koma fyrir svölum á suðurhlið hússins og koma fyrir lyftu í húsinu, samkvæmt uppdrætti bj. Snæ arkitekta dags 26. september 2019.
Svar
Vísað til meðferðar verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.