Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. júlí 2017 var lögð fram umsókn
Plúsarkitekta ehf.
f.h. Ásdísar Jónsdóttur dags. 28. júní 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Nýlendureits sem felst í breytingu á byggingarreit og skilmálum lóðarinnar nr. 29 við Nýlendugötu til samræmis við upphaflegar byggingarnefndarteikningar, samkvæmt tillögu
Plúsarkitekta ehf.
dags. 25. ágúst 2017. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Nýlendugötu 5, 27 og 30. Vesturgötu 44, 44a, 46a og 48. Bakkastíg 2 og 4.