Lögð fram umsókn Vegagerðarinnar dags. 25. mars 2020 um framkvæmdaleyfi vegna tvöföldunar Suðurlandsvegar frá Vesturlandsvegi að Bæjarhálsi ásamt tengingum við núverandi vegakerfi og lengingu og breikkun á undirgöngum við Krókháls. Einnig er lagt fram bréf Vegagerðarinnar dags. 26. mars 2020, útboðslýsing Eflu dags. í janúar 2020 og tillöguhefti - uppdrættir Eflu dags. í janúar 2020.