Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 12. febrúar 2021 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 9. febrúar 2021 þar sem spurt er hvort íbúð í rými 0301, sem er skráð geymsla F2010492, fengist samþykkt, í húsi á lóð nr. 3 við Þverholt. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 19. mars 2021.