Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. mars 2020 þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta kvisti og setja nýjan kvist á suðurþekju þaks, og gera tröppur af svölum 1. hæðar niður í garð húss á lóð nr. 42 við Hofteig. Stækkun: x.xx ferm., x.xx rúmm. Erindi fylgir lóðauppdráttur 1.365.0 samþykktur 1. ágúst 2017, bréf frá hönnuði dags. 9. mars 2020, samþykki eigenda í húsi nr. 42 og 44 dags. 27. maí 2019 og afrit af tölvupósti frá skipulagsfulltrúa dags. 11. desember 2019. og yfirlit breytinga á teikn. nr. 001 útgáfa B00 dags. 29. október 2020. Gjald kr. 11.200