Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 1. apríl 2016 var lögð fram fyrirspurn Atelier arkitekta slf. f.h. Íslandshótels hf., mótt. 26. febrúar 2016, um að stækka inndregna 4. hæð hússins að Rauðarárstíg 35-39, Best Western hótel, yfir svalir á vestur- og austurhlið, samkvæmt uppdr. Atelier arkitekta slf., dags. febrúar 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.